| Leikskólinn Engjaborg |
|
|
|
|
Leikskólinn Engjaborg hóf starfsemi sína 16. maí 1994. Leikskólinn skiptist í fjórar deildar hér eru 86 börn þegar öll eru og þau skiptast þannig 5 ára, 4 ára, 3ja ára, 2ja ára. Leikskólinn vinnur eftir Engjaborgarstefnunni en hún er að miklu leyti unnin upp úr Hjallastefnunni og Aðalnámskrá leikskóla, sem menntamálaráðuneytið gaf út árið 1999, en hún er stefnumótandi leiðarvísir um uppeldistörf í leikskólum. Engjaborg gaf út námskrá vorið 2004 sem verður endurmetin veturinn 2008. Einnig hefur verið unnin aldursmiðuð námskrá til leiðbeiningar fyrir kennara leikskólans. Á Engjaborg vinna 22 starfsmenn og af þeim eru 1 í fæðingarorlofi Í dag starfa 4 leikskólakennarar, 1 Hjúkrunarfræðingur og með menntun í mál og tjáskiptum einstaklinga með málörðuleika, 1 Barnasálfræðingur, 1 með B.A í sálfræði, 1 Þroskaþjálfi, 1 Grunnskólakennari, 1 með aðra kennaramenntun, 1 Uppeldis - og menntunarfræðingur, 1 Stjórnmálafræðingur með kennsluréttindi. 9 Leiðbeinendur. 1 Aðstoð í eldhúsi
|