Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Spurt og svarað


Leikskólataskan Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
  leikskolataska

   



Svo að hægt sé að klæða börnin eftir veðri er nauðsynlegt að taska barnanna sé vel búin. Það sem á að vera í leikskólatöskunni er eftirfarandi:



  • Aukaföt/nærföt, sokkabuxur, sokkar, peysa og buxur.
  • Regnföt
  • Stígvél
  • Þykk peysa/flíspeysa
  • Húfa
  • Vettlingar
  • Ullarsokkar
  • Kuldagalli / í það minnsta yfir vetrartímann



 

 
Veikindi barna Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
sicksmileyface2 

Börn þurfa að vera frísk til að geta tekið þátt í allri starfsemi  leikskólans.   Veik börn verða því að vera heima þar til þau hafa náð sér.


Þurfi barn að vera inni eftir veikindi eru foreldrar eða forráðamenn beðnir að hafa samráð um það við deildarstjóra viðkomandi deildar.


Komi barnið ekki í leikskólann eru foreldrar beðnir að láta okkur vita. Þetta er nauðsynlegt til að við vitum hverjir tilheyra barnahópnum hvern dag og einnig til að vita hvaða veikindi eru í gangi hverju sinni.

Trúnaðarlæknir barna fyrir Leikskóla Reykjavíkur er Katrín Davíðsdóttir  barnalæknir.


 
Afmæli Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
birthdaycakeHaldið er upp á afmæli í leikskólanum. Barnið kemur ekki með    neitt að heiman heldur sjáum við alfarið um afmælið hérna í leikskólanum. Barnið fær kórónu sem búin er til af starfsmanni eða börnunum og það fær að velja sér sérstakt afmælisglas og afmælisdisk sem það borðar af í matar- og kaffitímum. Sungið er fyrir barnið í samverustund og ein vinnustund er svo tileinkuð afmælinu og er þá farið í leiki og dansað eða hvað það sem afmælisbarnið vill gera.  
 

Lesa meira...
 
Lyfjagjöf á leikskólatíma Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
pillur

Sarfsfólk leikskólans á ekki að gefa börnunum lyf. Flest lyf sem börn taka eru þess eðlis að hægt er að gefa þau tvisvar á dag, því viljum við beina því til foreldra að ráðfæra sig við lækni og fá lyfjagjöfinni hagrætt með tilliti til þess.


Ef barn notar asmalyf eða önnur lyf sem ekki er hægt að setja undir það sem að ofan er getið, eru foreldrar beðnir að hafa samráð við deildarstjóra viðkomandi deildar um fyrirkomulag þess.

 
Slys á börnum Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fyrsta_hjalpSlasist barn í leikskólanum sinnum við því eins og ástæður gefa tilefni til og hringjum í foreldra. Þurfi barnið að komast tafarlaust undir læknishendur förum við með það í leigubíl eða sjúkrabíl og boðum foreldra þangað.
 


Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Engjaborg | Reyrengi 11 | 112 Reykjavík | Sími: 5879130 | Póstur | Viðburðir | Fréttir