Jól
Jóladagskrá Engjaborgar hefst í byrjun desember á því að við byrjum að æfa jólasöngvana. Við leggjum upp úr því að það sé ró og friður á jólaaðventunni. Það sem gert er í desember er eftirfarandi:
Jólaleikrit er í boði foreldrafélagsins.
Jólaball. Eitt jólaball er haldið fyrir öll börnin á leikskólanum fyrir hádegi. Boðið er upp á jólamorgunverð og jólamat í hádeginu þennan dag.
Helgileikur. Í desember ár hvert sýna elstu börn leikskólans helgileik. Haldnar eru tvær sýningar. Ein fyrir börn leikskólans en þá kemur prestur í heimsókn. Önnur sýning er haldin fyrir foreldra og þeim boðið á jólakaffihúsið eftir sýninguna.
Jólakaffihús. Börnin bjóða foreldrum á kaffihús í heimbakaðar smákökur, heitt kakó og mandarínur.
Jólaföndur. Jólaföndri er stillt í hóf í jólaundirbúningnum. Jólagjafir til foreldra eru búnar til af börnunum og eru í umsjón hópstjóra.
Öskudagur
Furðufataball er haldið fyrir öll börnin á leikskólanum fyrir hádegi. Boðið er upp á andlitsmálun, dansað í sal, kötturinn er slegin úr tunnunni og sest niður með góðgæti undir ljúfri tónlist.
Sumarhátíð
Fyrir lokun á sumrin er haldin sumarhátíð á leikskólanum. Ef veður leyfir erum við úti í leikjum og starfi í vinnustundum og höldum grillveislu í hádeginu.
Íþróttadagur
Einu sinni á önn er haldinn íþróttadagur. Þá eru vinnustundirnar undirlagðar í skipulagða hreyfingu. Skólanum er skipt í stöðvar og börnin fara á milli með hópstjóra. Lagt er upp úr því að það sé mikið fjör og gaman.
Afmæli barnanna
Haldið er upp á afmæli í leikskólanum. Barnið kemur ekki með neitt að heiman heldur sjáum við alfarið um afmælið hérna í leikskólanum. Barnið fær kórónu sem búin er til af starfsmanni eða börnunum og það fær að velja sér sérstakt afmælisglas og afmælisdisk sem það borðar af í matar- og kaffitímum. Sungið er fyrir barnið í samverustund og ein vinnustund er svo tileinkuð afmælinu og er þá farið í leiki og dansað eða hvað það sem afmælisbarnið vill gera.
Opið hús
Opið hús í leikskólanum er að vori. Þennan dag gefst nemendum leikskólans tækifæri á að bjóða ættingjum og vinum að skoða leikskólann og kynna sér starfsemi hans. Tilvonandi nemendur og foreldrar þeirra eru einnig boðnir velkomnir til að skoða leikskólann og kynna sér hann.
Vinafundir
Vinafundir eru á hverjum föstudegi. Þá safnast allar deildir leikskólans saman og halda fund á sal. Á vinafundum syngjum við saman, hlustum á sögur og horfum á leikþætti og stundum fáum við óvæntar uppákomur. Deildirnar skiptast á að stjórna vinafundum, en þeir eru með föstu skipulagi. Sú deild sem á vinafund er með atriði sem getur verið t.d. söngur sem börnin hafa æft eða leikrit. Með vinafundum styrkjum við samvinnu og tengsl allra deildanna á leikskólanum.
Tónleikar
Sinfóníuhljómsveit Íslands býður elstu börnunum á tónleika í byrjun hvers árs. Foreldrafélagið býður hópnum á McDonald's eftir tónleikana.
Útskrift elstu barna
Á Engjaborg hefur sú hefð myndast að elstu börnin mæta ásamt ættingjum sínum til veislu einn eftirmiðdag að vori. Hvert barn kemur með veitingar sem settar eru á hlaðborð. Leikskólastjóri heldur ræðu og afhendir hverju barni viðurkenningarskjal. Hópstjóri færir hverju barni útskriftarbók sem inniheldur verkefni vetrarins og myndir úr starfinu og foreldrafélagið gefur útskriftarnemum rósir. Börnin sjá sjálf um uppákomu.
|