Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Vasaljósadagur Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 06 janúar 2012 12:24

Þann 12.janúar verður vasaljósadagur á Engjaborg. Öll börn mega koma með vasaljós með sér en endilega merkja þau vel. Svört litavika verður dagana 9.jan til 13.jan.

Kær kveðja kennarar á Engjaborg

 
Bestu jóla og nýárskveðjur. Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
þriðjudagur, 20 desember 2011 12:47

                                                                                                       Kæru Foreldrar/ forráðamenn

                                                                 Okkar bestu óskir um gleðiríka hátíð og farsæld á komandi ári, þökkum allt liðið,

                                                                 Hlökkum til nýs og spennandi árs með ykkur.

 

 

                                                                              

alt
                                                                                           

                                                                                                    kærar kveðjur starfsfólk Engjaborgar  :)

 
8.nóv Barátta gegn einelti. Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 04 nóvember 2011 10:28

alt

Stöndum saman í baráttu gegn einelti

Verkefnisstjórn í aðgerðum gegn einelti hefur ákveðið að standa að sérstökum degi gegn einelti 8. nóvember 2011. Verkefnisstjórnin samanstendur af fulltrúum fjármálaráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis, og er hún skipuð í kjölfarið á útgáfu Greinargerðar um mögulegar aðgerðir gegn einelti í skólum og á vinnustöðum sem kom út í júní 2010.

Í tilefni dagsins verður undirritaður þjóðarsáttmáli um jákvæð samskipti. Forsætisráðherra er verndari átaksins og munu velferðarráðherra, fjármálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra undirrita sáttmálann fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Ennfremur eru fjöldi félaga og samtaka aðilar að samningnum.Við undirritunina verða einnig afhent gul armbönd sem gerð hafa verið í tilefni dagsins og bera yfirskriftina: Jákvæð samskipti. Þeim verður í kjölfarið dreift til almennings eftir því sem að upplag endist.

Einelti spyr ekki um aldur, þjóðfélagshópa eða kyn og það þrífst einfaldlega allsstaðar þar sem það er látið viðgangast. Ábyrgð okkar allra er því mikil og það er í okkar höndum að vinna bug á þessu þjóðfélagsmeini. Það er ekki flókið ef allir taka höndum saman og sannmælast um ákveðna sátt , þjóðarsáttmála um jákvæð samskipti.

Í tilefni af baráttudegi gegn einelti þann 8. nóvember verður opnuð heimasíðan www.gegneinelti.is og þar gefst fólki kostur á að undirrita eftirfarandi sáttmála:

Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti

Við undirrituð skuldbindum okkur til þess að vinna af alefli og einurð gegn einelti í samfélagi okkar. Við munum standa vörð um rétt fólks til þess að lifa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt. Við munum sérstaklega gæta réttar barna og ungmenna sem og allra hópa sem eiga sér hvorki málsvara né sterka rödd. Við munum öll, hvert á okkar sviði, skuldbinda okkur til að hafa áhrif til góðs á nánasta umhverfi okkar. Við ætlum að vera góð fyrirmynd og leggja okkar af mörkum til að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er.

Verkefnastjórnin hvetur alla þá fjölmörgu aðila og samtök, sem starfa á þeim vettvangi sem átakið nær til, til þess að taka höndum saman og helga 8. nóvember n.k. baráttunni gegn einelti. Sérstaklega er þessu beint til leikskóla, grunn- og framhaldsskóla, félags- og frístundamiðstöðva, auk vinnustaða og stofnana. Ýmislegt er að hægt að gera í tilefni dagsins, s.s. að halda upp á hann með táknrænum hætti eða beina umræðunni að einelti og afleiðingum þess í samfélaginu.

Verkefnisstjórnin vonast til að sem flestir í samfélaginu skrifi undir þjóðarsáttmálann og taki þátt í því að setja umræðuna um einelti í brennidepil þennan dag - málefnið er brýnt og til mikils að vinna ef í sameiningu tekst að koma á þjóðarsáttmála um jákvæð og uppbyggileg samskipti.

F.h. Verkefnastjórnar um aðgerðir gegn einelti

Árni Guðmundsson verkefnastjóri

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 18

Röskun á starfi vegna óveðurs eða öskufalls - Disruption of school operations

Viðburðir


Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Engjaborg | Reyrengi 11 | 112 Reykjavík | Sími: 5879130 | Póstur | Viðburðir | Fréttir